Innlent

Engri kirkju hollt að vera of ná­lægt ríkinu

Heimir Már Pétursson skrifar
Agnes Sigurðardóttir biskup Íslands faðmaði Guðrúnu Karls Helgudóttur nýkjörin biskup þegar hún kom á Biskupsstofu að afloknu kjöri í dag.
Agnes Sigurðardóttir biskup Íslands faðmaði Guðrúnu Karls Helgudóttur nýkjörin biskup þegar hún kom á Biskupsstofu að afloknu kjöri í dag. Vísir/Vilhelm

Nýkjörin biskup segir þjóðkirkjuna enn eiga erindi í samfélaginu. Búið væri að skilja að ríki og kirkju eins mikið og mögulegt væri enda engri kirkju heilbrigt að vera of nálægt ríkinu.

Agnes Sigurðardóttir biskup Íslands faðmaði Guðrúnu Karls Helgudóttur nýkjörin biskup og óskaði henni til hamingju með kjörið þegar Guðrún kom á Biskupsstofu í dag. Kosið var á milli Sr. Guðrúnar sóknarprests í Grafarvogskirkju og Sr.Guðmundar Karls Brynjarssonar sóknarprests í Lindakirkju í síðari umferð biskupskjörs

Úrslitin lágu fyrir í hádeginu og hlaut Guðrún 52 prósent atkvæða og Guðmundur Karl 47 prósent. Hún tekur við embættinu 1. júlí og verður síðan formlega sett í embætti með athöfn hinn 1. september.

Guðrún Karls Helgudóttir er nýkjörin biskup Íslands segir engri kirkju heilbrigt að standa allt of nálægt ríkisvaldinu.Vísir/Vilhelm

„Ég á eiginlega vart til orð yfir þakklæti. Ég er hrærð. Þakklát öllu kirkjufólki sem kaus mig,“ sagði Guðrún eftir að starfsfólk Biskupsstofu hafði tekið henni fagnandi klukkan tvö í dag. Hún þakkar Agnesi Sigurðardóttur einnig fyrir að hafa rutt brautina fyrst kvenna í embætti biskups Íslands og Sólveigu Láru Guðmundsdóttur sem fyrst kvenna varð vígslubiskup.

Guðrún segir erindi þjóðkirkjunnar um kærleika Guðs og trúna á almættið alltaf eiga erindi í þjóðfélaginu.

„Auk þess sem Jesús Kristur og hans erindi klikkar aldrei,“ segir nýkjörin biskup. Hún er sátt við þær breytingar sem Agnes hefur leitt á kirkjunni á undanförnum árum. Þjóðkirkja eigi einnig enn erindi í samfélaginu enda gert ráð fyrir henni í stjórnarskránni.

„Á sama tíma er ég hlynnt því að það séu sem allra, allra minnst tengsl milli ríkis og kirkju. Ég held að það sé engri kirkju heilbrigt að vera allt of nálægt ríkinu. En við erum búin að skilja að ríki og kirkju eins mikið og mögulegt er einmitt nú,“segir Guðrún.

Agnes Sigurðardóttir hefur setið á biskupsstóli í 12 ár og var fyrst kvenna til að ná kjöri í það embætti.Vísir/Vilhelm

Agnes er þakklát fyrir tólf ár á biskupsstóli og fagnar annarri konu í embættið.

„Mér finnst það líka gott fyrir ásýnd kirkjunnar að á biskupafundi sitji ein kona og tveir karlar en ekki þrír karlar til dæmis. En allt þetta fólk sem gaf kost á sér til að vera biskup Íslands er mjög gott fólk. Það hefði hver sem er þeirra getað tekið við af mér út frá því. En ég fagna þessari niðurstöðu,“segir Agnes Sigurðardóttir.


Tengdar fréttir

„Við þurfum ekki að verjast neinu“

Séra Guðrún Karls Helgudóttir, sem var kjörin biskup Íslands í dag, segist vilja leiða öfluga Þjóðkirkju. Hún muni beita sér fyrir því að meðlimum kirkjunnar fækki ekki.

Séra Guðrún kjörin biskup Íslands

Séra Guðrún Karls Helgudóttir var í dag kjörin biskup Íslands. Kosið var milli hennar og Guðmundar Karls Brynjarssonar. Guðrún tekur við af Agnesi M. Sigurðardóttur sem hefur gegnt embættinu síðan árið 2012. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×